Færsluflokkur: Bloggar

Hvenær verður bátur skip

Það er ekki nema von að eyjamenn vilji fá stærri "bát" til siglinga uppá fastalandið.Mig mynnir að þessi "bátur" hafi verið það stór að það hafi verið hægt að kalla hann skip
mbl.is Herjólfur í slipp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylkisstelpur kepptu við ólympíufara

Sjöfn og Þórdís úr fimleikadeild Fylkis gerðu góða ferð til Búdapest um síðustu helgi og tóku þátt í Ungverska meistaramótinu.Gekk þeim bara vel,Sjöfn lenti í tíunda sæti í samanlögðu og Þórdís í því fjórða og keppti þar af leiðandi í úrstlitum á sunnudaginn,en Sjöfn vara fyrsta til vara á gólfi og slá.Þórdís keppti á gólfi,hesti og slá og vann til verðlauna í öllum greinum.Var þetta hin besta ferð þar sem stelpurnar keptu við keppendur frá ímsum löndum og td. stelpur sem eru að fara á ÓL í Kína.Als voru 65 keppendur á mótinu.


Flottir menn hjá Líflandi

Nú á þessari stundu er verið að "krína" okkar mann í Herra Ísland.Guðni Páll er starfsmaður í MR búðinn og stóð sig með príði og var í 4-5 sæti.Það er nú ekki amalegt að vinna með 4-5 flottasta manni á Íslandi.

En af okkur Sjöfn er að frétta að við förum áleiðis til Búdapest í fyrramálið og vonandi getið þið fylgst með ferðum okkar á síðunni


Það er orðið ár síðan

Um síðustu helgi keppti Sjöfn loks á fimleikamóti.Hún hafði ekki tekið þátt í móti í um ár, þar sem hún lenti í því að keilukúlu á fótinn á sér fyrir ári og brotnaði hann við það.Mótið gekk vel hjá henni og lenti hún í öðru sæti.

Kristjana er að fara í enn eina geislameðferðin í fyrramálið.Þetta er komið í vana hjá henni og kippir sér ekki upp við þetta.En ætli þetta sé ekki í 12 skiptið.


Er það ferðaþjónustan sem vill þennan vinnutíma?

Þetta er nú bara bilun með þennan vinnutíma.Maður vinnur bara hálfan daginn og er skipað að fara heim að hvíla sig.Þetta væri svosem í lagi ef maður vil ekki alltaf sofa heima hjá sér,heldur þarf maður að skríða inná vegahótel eða bændagistingar.En það er bara hægt þegar þeim hlotnast að hafa opið.

En hvað með lækna?Þeir geta unnið eins og þeir vilja.Tekið 2-3 vaktir í einu,en þeir eru BARA að meðhönda líf annara.


mbl.is Danskir vörubílstjórar loka ferjuhöfnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr Miðhúsaskógi til Budapest

Loks komumst við fjölskyldan í sumaðrbústað um helgina.Ferðinni var heitið í Miðhúsaskóg og var eftirvænting um hvenær hægt væri að leggja af stað,þar sem sjaldnast hefur staðist hvenær ég hef ætlað að hætta í vinnunni.En til að vera búinn snemma á föstudaginn,þá fór ég í Hrútaförðinn á fimtudaginn og gisti þar.En í stuttu máli var dagurinn þannig að allt gekk á afturhjólunum og ég var ekki kominn í bæjinn fyren að verða átta og þá var skelt sér austur fyrir fjall.Helgin var bara fín,þrátt fyrir að ekki var hægt að horfa á TV,"heiti"potturinn var kaldur og gasgrillið virkaði ekki.Það er nú ástæða fyrir því að það er hagnaður á þessum lífeyrissjóðum ef þessu drasli er ekki haldið við.En hin ímsu spil voru tekin fram og voru samveru fjölsyldumeðlima gerð góð skil og fóru sumir í göngutúra.

Ég og Sjöfn erum að skreppa til Búdapest þann 22 nk. á fimleikamót og fara þrjár stelpur frá Fylki á þetta mót.Það var komið að mér að fara núna,því að það verður gist á hótelum og þar af leiðandi þarf ekki að elda eins og þurft að gera í öðrum ferðum.


Eiga skepnurnar að drekka bensín

Djöful er ég sammála honum Ziegler.Tilhvers þurfuum við lífrænt eldsneiti á farartækin okkar,þegar við sjálf étum svo mikið að rotvarnarefnum að við rotnum varla þegar kemur að því.Svo þegar mjólkurlíterinn verður komin uppí 350kr/kg,kjúklingurinn í 6400kr/kg og svínið í 9800kr/kg, bara vegna þess að það er verið að berjast fyrir því að búa til eldsneyti á farartæki úr korninu fyrir dýrin,þá hugsum við til þeirra daga þegar það var til bensín.
mbl.is Eldsneytisframleiðsla úr matvælum „glæpur gegn mannkyninu"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villa á afmæli á morgun

Vil bara mynna á það að Villa á afmæli á morgun og óskum við henni til hamingju með daginn.Hún er að heiman en mig mynnir að gemsinn hjá henni sé 8945201.Hún hefur örugglega gaman að heyra í ykkur.

Hér erum við alltaf við sama heygarðshornið.

Að vera við sama heygarðshornið er komið að því að þegar við vorum í heyskap í sveitinni,þá kom fyrir að það kvesti að norðan og allt heyjið fauk í eitt hornið á túninu.Þar dvali ég langdvölum og tíndi uppúr skurðum og tíndi af girðingum hey.Þegar Eiríkur var farinn að lengja eftir mér, þá koma hann og sagði alltaf."Tja,þú ert alltaf við sama heygarðshornið"

En svona í framhjáhaldi er bara allt gott að frétta.Sjöfn og Kristjana stunda fimleika af kappi,en Bára hefur sett bolinn upp í skáp í bili.Ætlar hún jafnvel að taka hann fram eftir námsárin í Danmörku,en hún fer eftir áramót.Stundar hún nú akstursæfingar af kappi og skilur ekkert í því afhverju ég þarf að nota hann stundum á kvöldin ,þar sem ég hef verið að keyra allann daginn.Hún fer í sveitina um helgina að hjálpa gamla fólkinu,því Villa og Kiddi eru að heiman.

Jónína er að fara með mig í óvissuferð með vinnunni hennar,en það verður kanski ekki mikil óvissuferð fyrir mig þar sem ég þarf að keyra langferðabílinn.Sjöfn og Kristjana tjilla heima á meðan


Virkjum gamla fólkið

Ég ferðast töluvert um landið vinnu minnar vegna og þar af leiðandi þarf ég að nærast og taka mína lögbundnu hvíld og nota ég aðalega virt veitingahús við þjóðveginn,eða sveitavegi.Kom ég við í einu um daginn og fór að pæla í staffinu.Matreiðslumaðurinn var tékkneskur,stelpan í grillinu var sænsk,drengurinn í sjoppunni danskur,stúlkan í uppvaskinu frá póllandi.Þetta fólk var allt innan við þrítugt og virtist þetta bara vera hið besta mál og þeir sem voru í samskiptum við kúnann töluðu þokkalega íslensku.En í morgun átti ég leið framhjá sama veitingahúsi og fékk mér kaffi og "enda".Þá var staffið allt annað.Það voru þrjú á vagtinni og öll komin á áttræðisaldurinn.Sem sýnir það að þrjá íslenska ellilíverisþega þarf til að gera það sama og fjórir nýbúar gera.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Magnússon

Höfundur

Guðmundur Magnússon
Guðmundur Magnússon

Rómantískur bóndasonur sem leitar ævintýra vítt og breitt um landið

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Kristjana og hjólið
  • Skálað í veislunni
  • Fall er fararheill
  • Ný gift
  • Dama að djúsa

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband